Horse Breeding - Horses for sale

Close Icon
   
Contact Info     +354 864 1315 hamarsey@hamarsey.is

Hamborg í góðum gír

Hamborg og Viðja Hrund á hægu tölti. Stefnt er með Hamborgu í kynbótadóm í vor.

Hamborg og Viðja Hrund á hægu tölti. Stefnt er með Hamborgu í kynbótadóm í vor.

Hamborg frá Feti er 5 vetra klárhryssa í okkar eigu. Hún er undan Álaborgu frá Feti sem er ein af ræktunarhryssunum á Hamarsey og Stíganda frá Leysingjastöðum (f. Andvari frá Ey). Hamborg fór í flottan byggingardóm í fyrra, 8,06. Þar á meðal 8,5 fyrir samræmi, háls/herðar, bak/lend og hófa. Hamborg er framtíðar keppnishross, hefur góðar grunngangtegundir er fasmikil og hágeng.