Gleðileg jól á Hamarsey
Það var vetrarlegt um að litast á Hamarsey helgina fyrir jól þegar við fórum og sóttum Platínu frá Holtsmúla, Hátíð frá Sauðárkróki og geldingana Ref og Goða. Nú ríðum við út í Hafnarfirði eins og við getum, erum með sjö hross á húsi.
En það þarf ýmislegt annað að gera en að ríða út. Við höfum notað tímann um jólin til að járna, raspa og raka undan faxi og kvið.
Gleðileg jól og farsælt komandi ár.