Sjötta sæti á Íslandsmóti
Hannes og Vakning náðu 6. sæti í gæðingaskeiði á Íslandsmóti á Akureyri um miðjan júlí. Vakning er teknískt í greininni, fljót niður og flott í skeiðsniði, hágeng og skrefmikil. En hún er líka fljót, er að fara 100 metrana í gæðingaskeiði á rétt rúmlega 8 sekúndum – 8,10 til 8,40. Það hefði verið gaman að hafa Vakningu í þjálfun á næsta ári og fylgja eftir þessum efnilega gæðingaskeiðsárangri. En við erum í hrossarækt og tímum einfaldlega ekki að hafa Vakningu gelda.