Horse Breeding - Horses for sale

Close Icon
   
Contact Info     +354 864 1315 hamarsey@hamarsey.is

Fantasía frá Hamarsey – síðasta folald ársins

Fantasía

Fantasía

Þó það sé nú frekar seint í rassinn gripið að fæðast í byrjun ágúst þá á hún nokkuð góða daga framundan, amk samkvæmt veðurspá næstu daga, það eru hlýindi í kortunum. Fantasía frá Hamarsey á hún að heita, dóttir Álfs frá Selfossi og Föstu frá Hofi. Fantasía er fjórða einlita folaldið sem við fáum í ár undan skjóttum feðrum. Þremur hryssum var haldið undir Álf frá Selfossi og einni undir son hans, hinn rauðskjótta Hákon. Við fengum tvær rauðar hryssur og fífilbleikan hest undan Álfi og eina bleikstjörnótta hryssu undan Hákoni.

Fantasía

Fantasía

Fantasía

Fantasía