Horse Breeding - Horses for sale

Close Icon
   
Contact Info     +354 864 1315 hamarsey@hamarsey.is

Gengur vel í Noregi

Vísa í byggingardómi

Vísa í byggingardómi

Vinur okkar, samstarfsaðili og meðeigandi að Hamarsey, hinn norski Per S. Thrane stundar sína hrossarækt að lang mestu leyti hér á Íslandi – með okkur á Hamarsey. Hann er hins vegar með nokkur hross úti hjá sér í Noregi og eru þau ekki af verri endanum. Helst ber að geta Vísu frá Sundsberg, undan einum hæst dæmda stóðhesti í heimi, Ísari frá Keldudal og Vöku frá Österåker. Vísa er með BLUP 124.

Það var Vignir Jónasson sem sýndi Vöku í kynbótadómi í vor og fékk hún í aðaleinkunn 8,15 fjögurra vetra gömul og var hæst dæmda 4 vetra hryssan í Svíþjóð í ár.

Vísa á kynbótabrautinni í vor, knapi Vignir Jónasson

Vísa á kynbótabrautinni í vor, knapi Vignir Jónasson