Sara fylfull við Tenóri
Sara frá Sauðárkróki er fylfull við Tenóri frá Túnsbergi. Sara, sem er 8 vetra gömul, hefur verið eitt okkar aðal reiðhross síðustu ár auk þess að taka þátt í keppni og sýningum. Hún er nú komin í folaldseignir og á vonandi eftir að gefa okkur spennandi afkvæmi. Tenór er undan Garra frá Reykjavík, Orrasyni frá Þúfu og Ísoldar frá Gunnarsholti. Garri hlaut heiðursverðlaun fyrir afkvæmi í Danmörku í vor. Tenór er hæst dæmdi stóðhestur í heimi fyrir hæfileika, 9,15. Hann hlaut í fyrra, 6 vetra gamall, 9,0 fyrir skeið, fegurð í reið og hægt tölt en 9,5 fyrir tölt, brokk og vilja og geðslag. Móðir Tenórs er gæðingamóðirin Staka frá Litlu- Sandvík, Gáskadóttir frá Hofstöðum. Hún hefur gefið fjögur 1. verðlauna afkvæmi.