Nýtt tryppi – stórættuð Aronsdóttir
Glódís frá Sundabergi er stórættuð unghryssa, 2ja vetra í vor. Við keyptum hana af vinum okkar í Svíþjóð, Önnu og Birgittu www.sundsberg.se, síðastliðinn vetur.
Faðirinn er Aron frá Strandarhöfði sem er nú að stimpla sig inn sem kynbótahestur með nærri 40 afkvæmi í 1. verðlaunum. Móðir Glódísar er af mjög spennandi ættum. Sú heitir Glóð frá Árbæ og er undan Sæ frá Bakkakoti og Glás frá Votmúla. Glás er undan Baldri frá Bakka og Garúnu frá Stóra-Hofi, sem var undan Dreyra frá Álfsnesi og hinni frægu heiðursverðlaunahryssu Nótt frá Kröggólfsstöðum.