Æfingabúðir á Hvoli
Við höfum gaman af því að keppa. Við höfum náð okkur í góðan efnivið í keppnishross og höfum undanfarin misseri þjálfað með því augnamiði að ná árangri. Til þess að standa sig vel í keppni þarf að þjálfa mikið og vel en einnig er mikilvægt að halda sér við og sækja sér þekkingu og kunnáttu hjá þeim bestu. Við höfum sótt reiðnámskeið hjá góðum reiðkennurum svo sem Erlingi Erlingssyni, Karly Zingsheim, Atla Guðmundssyni, Antoni Páli Níelssyni og nú síðast Þorvaldi Árna Þorvaldssyni.
Hjá Þorvaldi Árna á Hvoli dvöldum við nokkra daga í byrjun vikunnar og nutum hans leiðsagnar með keppnishrossin okkar.
Þorvaldur er frábær kennari. Hann náði vel til okkar og var fljótur að lesa kosti og galla okkar sem reiðmanna jafnt sem kosti og galla hrossanna. Við náðum góðum árangri með hrossin okkar þá daga sem við vorum á Hvoli og komum fílefld til leiks í seinni hluta keppnistímabilsins.