Horse Breeding - Horses for sale

Close Icon
   
Contact Info     +354 864 1315 hamarsey@hamarsey.is

Author Archives: Hamarsey

Post Image

Ný hryssa í hópinn

Linda frá Feti er nýjasta hryssan hjá okkur. Linda er undan Sveini-Hervari frá Þúfu og Filippíu frá Feti. Filippía er skyldleikaræktuð undan Ófeigi frá Flugumýri, undan Hrannari frá Kýrholti Ófeigssyni og Ófelíu frá Gerðum Ófeigsdóttur. Sveinn-Hervar hefur sannað sig sem kynbótahestur og rétt missti af heiðursverðlaunum á LM2008 í ár. Linda heillaði okkur sérstaklega þegar […]

Read More
Post Image

Hrund fylfull við Aroni

Hrund frá Árbæ var sónarskoðuð fyrir helgi. Hún var hjá Aroni og reyndist fylfull. Við sóttum hana og son hennar Háska um helgina og slepptum mæðgininum í víðáttuna á Hamarsey.

Read More
Post Image

Þruma fylfull við Álfi

Sónarskoðað var í Langholti um síðustu helgi, Þruma okkar frá Hólshúsum er fylfull við Álfi frá Selfossi. Þau eru að vísu frændsystkini en okkur langaði að fá eitt afkvæmi undan þessum frábæru hrossum. Erlingur og Viðja í Langholti, sem eiga Þrumu með okkur, höfðu mikið um það að segja að Þrumu var haldið undir Álf…enda […]

Read More
Post Image

Sara, Selma og Gasella á LM2008

Það voru góðir dagar í Hafnarfirði þessa vikuna en þrjár hryssur í okkar eigu náðu lágmörkum inn á Landsmót. Knöpunum, snillingunum Erlingi, Sigurði og Daníeli færum við bestu þakkir fyrir frábærlega unnin störf. Myndin hér til hliðar er af Söru og Erlingi æfa sig á afleggjaranu að Langholti í byrjun maí 2008. Selma frá Sauðárkróki […]

Read More
Post Image

New horses for sale

Við erum ávallt með, bæði ræktunar-, keppnis- og reiðhross. Kíkið á Hestar til sölu hér til hægri.

Read More
Post Image

Velkomin á hamarsey.is

Hamarsey er um 110 hektara jörð 15km sunnan við Selfoss. Stærstur hluti jarðarinnar er úthagi en um 10 hektarar eru ræktuð tún. Engar byggingar eru á Hamarsey en unnið er að því að hólfa hana niður í beitarhólf með rafmagnsgirðingum auk þess að koma upp gerðum og skjólum í flestum hólfum. Einnig er stefnt að […]

Read More
Post Image

Gnótt frá Hamarsey – IS2008282311

Gnótt frá Hamarsey er undan Gnípu frá Hólum og Landsmótssigurvegaranum Stála frá Kjarri. Gnótt fæddist í lok maí 2008 og var strax heillandi í framgöngu. Hún er með hátt settan reistan háls og er háfætt og óvenju laus í bógum auk þess að sýna allan gang á sínum fyrstu dögum. Gnótt var seld til Hollands. Nýjir […]

Read More
Post Image

Fregn frá Hamarsey – IS2008282312

Um miðjan maí kom þessi gullfallega hryssa í heiminn, undan Sæ frá Bakkakoti og Föstu frá Hofi. Hún hefur fengið nafnið Fregn frá Hamarsey. Fasta fór undir Hróð frá Refsstöðum.

Read More
Post Image

Háski frá Hamarsey – IS2008182314

Háski er undan Kráki frá Blesastöðum og Hrund frá Árbæ. Hann fæddist daginn sem Suðurlandsskjálftinn 2008 – 6,3 á Richter reið yfir og þaðan kemur nafnið á honum. Allir undruðust blesuna þar sem hvorki Krákur né Hrund eru stjörnótt, hvað þá blesótt. Hins vegar eru stjörnur í öfum og ömmum Háska og þar hefur hann […]

Read More
Post Image

Þrá frá Hamarsey – IS2008282310

Þrá fæddist í lok maí 2008. Hún er undan klárhryssunni Þrumu frá Hólshúsum (sjá í Hryssur) og Þokka frá Kýrholti. Þrá er fífilbleik á litinn og með litla stjörnu eins og mamma sín. Þruma fór til Álfs frá Selfossi á folaldsgangmálinu og var hún sónuð fylfull nú um miðjan júní. Þrá var seld til Frakklands. […]

Read More